Fegurð einfaldleikans.
SEB
Öðruvísi íslenskir skartgripir byggðir upp af geometrískum formum þar sem fegurð einfaldleikans í norrænni hönnun fær notið sín. Skartgripirnir taka meðal annars á sig form fugla og dýra. Kynntu þér SEB og finndu þinn uppáhalds persónulega skartgrip.
Íslensk náttúra.
HRAUN 1
Kraftmiklir skartgripir. Hannaðir eftir nákvæmum afsteypum af íslenskum hraunsteinum, þar sem óslétt yfirborð hraunsins myndar ögrandi tengingu við íslenska náttúru. Kynntu þér afraksturinn og finndu þinn uppáhalds Hraun 1 skartgrip.
Draumkennd klassík.
HRAUN 2
Frá hringforminu, formi eilífðarinnar og afsteypu af innra yfirborði íslensk hraunsteins varð til skartgripalínan Hraun 2. Skartgripirnir eru fáanlegir úr gulli og silfri með og án eðalsteina. Kynntu þér fegurðina í Hraun 2 skartgripalínunni og finndu þinn uppáhalds skartgrip.
Rómantískur glæsileiki.
BIRKI
Úr afsteypum af fínlegum íslenskum birkitrjágreinum, þar sem hver einasta æð og yrja í trjáberkinum framkallast í eðalmálminum varð til skartgripalínan Birki. Kynntu þér þessa glæsilegu skartgripalínu og finndu þinn uppáhalds Birki skartgrip.
Íslensk hönnun og smíði.
UM PRAKT
PRAKT:
Er glæsileg skartgripaverlsun og verkstæði í miðborginni að Laugavegi 82.
EIGENDUR:
Eru gullsmiðirnir Sigríður Edda Bergsteinsdóttir og Þorbergur Halldórsson.
ÍSLENSK HÖNNUN OG SMÍÐI:
Allir skartgripirnir frá PRAKT eru hannaðir og smíðaðir á verkstæðinu að Laugavegi 82.
SKARTGRIPIRNIR:
Vandaðir skartgripir úr eðalmálmum og eðalsteinum fyrir þá sem kjósa gæði umfram magn.
VISIT OUR STORE IN
THE HEART OF DOWNTOWN REYKJAVÍK
Laugavegur 82, 101 Reykjavík,
Iceland