Velkomin í PRAKT

skartgripaverslun

Fegurð einfaldleikans.

SEB

Öðruvísi íslenskir skartgripir byggðir upp af geometrískum formum þar sem fegurð einfaldleikans í norrænni hönnun fær notið sín. Skartgripirnir taka meðal annars á sig form fugla og dýra. Kynntu þér SEB og finndu þinn uppáhalds persónulega skartgrip.

Íslensk náttúra.

HRAUN 1

Kraftmiklir skartgripir. Hannaðir eftir nákvæmum afsteypum af íslenskum hraunsteinum, þar sem óslétt yfirborð hraunsins myndar ögrandi tengingu við íslenska náttúru. Kynntu þér afraksturinn og finndu þinn uppáhalds Hraun 1 skartgrip.

Draumkennd klassík.

HRAUN 2

Frá hringforminu, formi eilífðarinnar og afsteypu af innra yfirborði íslensk hraunsteins varð til skartgripalínan Hraun 2. Skartgripirnir eru fáanlegir úr gulli og silfri með og án eðalsteina. Kynntu þér fegurðina í Hraun 2 skartgripalínunni og finndu þinn uppáhalds skartgrip.

Rómantískur glæsileiki.

BIRKI

Úr afsteypum af fínlegum íslenskum birkitrjágreinum, þar sem hver einasta æð og yrja í trjáberkinum framkallast í eðalmálminum varð til skartgripalínan Birki. Kynntu þér þessa glæsilegu skartgripalínu og finndu þinn uppáhalds Birki skartgrip.

Íslensk hönnun og smíði.

UM PRAKT

PRAKT:

Er glæsileg skartgripaverlsun og verkstæði í miðborginni að Laugavegi 82. 

EIGENDUR:

Eru gullsmiðirnir Sigríður Edda Bergsteinsdóttir og Þorbergur Halldórsson.

ÍSLENSK HÖNNUN OG SMÍÐI:

Allir skartgripirnir frá PRAKT eru hannaðir og smíðaðir á verkstæðinu að Laugavegi 82.

SKARTGRIPIRNIR:

Vandaðir skartgripir úr eðalmálmum og eðalsteinum fyrir þá sem kjósa gæði umfram magn.

OUR STORE

VISIT OUR STORE IN
THE HEART OF DOWNTOWN REYKJAVÍK

Laugavegur 82, 101 Reykjavík,
Iceland